Rúmlega milljarður kr. til menningar-, æskulýðs- og íþróttastarfs

Hálfur milljarður kr. mun renna til menningarstarfs og skapandi greina, með sérstakri áherslu á sjálfstætt starfandi listamenn, og 500 milljónir kr. til íþrótta- og æskulýðsstarfs, til að mæta áhrifum COVID-19. Þá verður 100 milljónum kr. varið til varðveislu menningararfs með sérstöku framlagi í húsafriðunarsjóð, eftir því sem fram kemur á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Stuðningurinn byggir á þingsályktunartillögu um fjárfestingarátak stjórnvalda til að vinna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldursins, sem samþykkt var á Alþingi þann 30. mars sl. og segir í fréttinni að hefðbundin menningarstarfsemi og íþrótta- og æskulýðsstarf hafi nánast lagst af á undanförnum vikum og stór hópur fólks og félaga orðið fyrir miklum tekjumissi.

„Það er mikilvægt að fjárveiting þessi skili sér hratt og vel út í samfélagið, svo hjólin haldi áfram að snúast og tjónið af núverandi aðstæðum verði sem minnst. Heildaráhrif COVID-19 eiga eftir að skýrast og mögulega þarf meiri stuðningur að koma til svo þessi mikilvæga starfsemi blómstri. Við munum taka afstöðu til þess þegar frekari upplýsingar liggja fyrir,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir