Sameiginlegur framboðsfundur í Húnavatnshreppi

Boðað hefur verið til sameiginlegs framboðsfundar vegna komandi sveitarstjórnakosninga í Húnavatnshreppi. Verður fundurinn haldinn í Húnavallaskóla, Húnavöllum, í kvöld þriðjudaginn 8. maí og hefst kl. 20:30.

Íbúar Húnavatnshrepps eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér stefnu framboðanna þriggja sem bjóða fram lista til sveitarstjórnar í Húnavatnshreppi þann 26. maí næstkomandi. Þeir eru: A-listi, Listi framtíðar; E-listi, Nýtt afl og N-listi, Nýtt framboð.

Fleiri fréttir