Samningurinn í hættu vegna verkfalls
Í fréttatilkynningu kemur fram að fjögur hundruð milljóna króna samningur SAH Afurða á Blönduósi, um sölu á 160 tonnum af lambakjöti og 70 þúsund gærum til fyrirtækis í Hong Kong, sé í hættu vegna verkfalls dýralækna. Fyrstu gámarnir eiga að fara úr landi eftir viku, en ef verkfallið dregst á langinn og tafir á afhendingu verði miklar óttast Gunnar Tr. Halldórsson, framkvæmdastjóri SAH Afurða, að samningnum verði rift.
Gámar með gærunum eru bókaðir í skip 26. maí næstkomandi og sú sending þarf vottun dýralækna Matvælastofnunar, og því fer hún ekki af stað ef þeir verða ennþá í verkfalli. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. Gunnar segir í samtali við Ríkisútvarpið að það sé alltaf hættulegt að geta ekki staðið við fyrstu sendingu í nýjum viðskiptum. Það geti haft mikil áhrif á áframhaldandi viðskipti. Í samningnum eru ákvæði um að félagið verði að greiða kaupandanum sektir ef afhending dregst meira en viku fram yfir umsamdar dagsetningar. "Það má eiginlega segja að það verði strax fjárhagslegt tjón ef ekki næst að fá gáma vottaða í næstu viku." sagði Gunnar.
Í samtali við Ríkisútvarp sagðist Gunnar einnig óttast að samningnum verði hreinlega rift ef að miklar tafir verði á afhendingu. SAH Afurðir eru litlir viðskiptavinir í þessum stóra heimi og ekki víst að fyrirtækið í Hong Kong vilji eiga við þá ef þeir geta ekki staðið við gerða samninga
