Samþykkt að auglýsa félagsheimilið á Blönduósi til leigu
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
23.06.2015
kl. 09.20
Byggðarráð Blönduósbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum, þann 16. júní sl., að auglýsa félagsheimilið á Blönduósi til leigu fyrir áhugasaman rekstraraðila.
Frá þessu er greint í fundargerð byggðaráðs
.
Fleiri fréttir
-
Flösku- og dósasöfnun frestað til fimmtudagsins 26. feb.
Flösku- og dósasöfnun sem átti að fara fram á morgun, miðvikudaginn 25. febrúar, hefur verið frestað til fimmudagsins 26. febrúar og munu iðkendur Körfuknattleiksdeildar Tindastóls ganga í hús á Króknum milli kl. 17-19. Ef þið eruð vant við látin, en viljið gefa nokkrar dósir og/eða flöskur, þá er ykkur velkomið að setja poka fyrir utan hurðina hjá ykkur merkta Tindastól og við kippum þeim með okkur.Meira -
Á sama tíma að ári á svið í Bifröst
Það er löngu orðin hefð fyrir því að Leikfélagið á Sauðárkróki frumsýni leikrit í Sæluviku. Venjulega er eitt verk sýnt að vori, ætlað fullorðnum áhorfendum og haustverk félagsins yfirleitt fyrir yngri kynslóðina. Leikfélag Sauðárkróks er eitt elsta áhugamannaleikfélag á landinu en það var stofnað 13. apríl 1888.Meira -
Sundlaugin í Varmahlíð lokuð
Sundlaugin í Varmahlíð er lokuð vegna kaldavatnsleysis.Meira -
Það kólnar og spáð er éljagangi í dag og á morgun
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 24.02.2026 kl. 08.44 oli@feykir.isÞað skall á með nettri sunnanátt í gær og hitnaði duglega. Það varð að sjálfsögðu til þess að snjórinn sem hafði lagst svo bjartur og fallegur á jörðina bráðnaði. Þegar Króksarar héldu út í myrkrið í morgun var snjórinn að mestu horfinn og stöku svellbunkar það sem minnti á veturinn. Það eru þó allar líkur á að snjórinn komi fljótt aftur því í dag og fram á föstudag má reikna með éljagangi og snjókomu af og til og frostið fer að bíta á ný.Meira -
Skorað á ráðherra að bretta upp ermarnar við uppbyggingu verknámshúsa
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum 19. febrúar sl. samhljóða áskorun til Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um að fylgja eftir áformum forvera síns, Guðmundur Ingi Kristinssonar, um að hefja framkvæmdir við fjóra verknámsskóla. „Óútskýrðar tafir við útboðsgögn hjá Framkvæmdasýslunni - Ríkiseignum og skortur á staðfestingu á fjármögnun framkvæmda frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, valda því að útlit er fyrir að framkvæmdir við stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra hefjist ekki á árinu 2026.“ segir í áskoruninni.Meira
