Sauma nú myndir úr Vatnsdælureflinum
Á vef Húnabyggðar er sagt frá hefðarkonum sem komu saman í kvennaskólanum á Blönduósi í gær. Nú þegar lokið hefur verið við sum á Vatnsdælureflinum eru þær aftur sestar við saum og hafa hafist handa við að sauma út myndir úr Vatnsdælureflinum sem seldar verða seinna í sumar þegar refilinn verður sýndur.
Kemur allur ágóði af sölunni til með að fara í sjóð fyrir byggingu nýs húss undir refilinn. Frábært framtak.