Senda fjóra til Moss
Nýkjörin æskulýðs- og tómstundanefnd Blönduósbæjar hefur ákveði að senda Guðbjörgu Þorleifsdóttur og Brynhildi Unu Björnsdóttur sem almennir þátttakendur á vinarbæjarmót í Moss í Noregi dagana 28. Júní til 4. Júlí.
Þá fara auk þeirra Oddný María Gunnarsdóttir og annað hvort Ágúst Þór Bragasyni eða Hilmari Þór Hilmarssyni sem fararstjórar.
Á þessu fyrsta fundi nefndarinnar var einnig rætt um að taka þurfi upp verklagsreglur fyrir vinabæjaheimsóknir.

