Sigríður Bjarney ráðin skólastjóri

Húni segir frá því að Hreppsnefnd Húnavatnshrepps hefur samþykkt að ráða Sigríði Bjarneyju Aadnegard, aðstoðarskólastjóra Blönduskóla, í stöðu skólastjóra við sameinaða skólastofnun á Húnavöllum frá og með næsta skólaári. Ráðningin er í samræmi við tillögu fræðslunefndar.

Ráðning skólastjóra við sameinaða skólastofnun Húnavatnshrepps var á dagskrá fundar hreppsnefndar Húnavatnshrepps þann 9. maí síðastliðinn. Þar lagði oddviti fram tillögu þess efndis að hreppsnefnd færi að tillögu fræðslunefndar um að Sigríður yrði ráðin í stöðuna. Tillagan var samþykkt samhljóma.

Fulltrúar A-lista lögðu fram bókun á fundinum þar sem fram kemur að þeir samþykkja niðurstöðu fræðslunefndar en gera alvarlegar athugasemdir við hvernig staðið hafi verið að undirbúningi við breytingar á yfirstjórn leik- og grunnskóla Húnavatnshrepps. „Meirihluti hreppsnefndar ber ábyrgð á þeim undirbúningi og hefur þar skort á vilja til samstarfs við foreldra á öllum undirbúningstímanum. Mikilvægt er að góð sátt sé í samfélaginu þegar slíkar ákvarðanir eru teknar“, segir í bókun fulltrúa A-lista.

Fulltrúar E-lista létu færa til bókar að þeir telji að ekki hafi verið staðið óeðlilega að undirbúning við breytingar á yfirstjórn leik- og grunnskóla á Húnavöllum, þó að eflaust hafi verið unnt að vinna málið á annan hátt. Þeir benda á að fulltrúi A-listans í fræðslunefnd hafi tekið fullan þátt í öllu undirbúningsferlinu

Fleiri fréttir