Sjálfstæðisflokkurinn - Á réttri leið

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á hringferð um landið undir yfirskriftinni „Á réttri leið – hittumst á heimavelli“.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á hringferð um landið undir yfirskriftinni „Á réttri leið – hittumst á heimavelli“.

Nú í kjördæmaviku mun þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefja hringferð um landið undir yfirskriftinni „Á réttri leið – hittumst á heimavelli“ sem varir næstu vikur og mánuði. Alls mun þingflokkurinn heimsækja yfir 50 bæi í öllum landsfjórðungum þar sem ýmist verða haldnir fundir eða vinnustaðir heimsóttir. Boðað hefur verið til tveggja funda á Norðurlandi vestra nk. sunnudag auk þess sem farið verður í vinnustaðaheimsóknir á Skagaströnd.

Fyrri fundurinn verður haldinn í Húnaþingi vestra á Hótel Laugarbakka kl. 13:00 en sá seinni í Skagafirði í Félagsheimilinu Ljósheimum kl. 17:30  og eru allir hvattir til að mæta. Í tilkynningu frá flokknum segir að heimamönnum gefist á hverjum stað einstakt tækifæri til að hitta þingmenn og ráðherra flokksins og ræða allt sem skiptir máli, stjórnmálin, atvinnulíf og mannlíf. Ekkert verður undanskilið og bæði horft til þess sem varðar nærsamfélagið og landið allt.

Að þessu sinni fer þingflokkurinn saman sem ein heild í öll kjördæmi í stað þess að þingmenn sinni einungis að mestu sínum eigin kjördæmum. Er það m.a. til að undirstrika að þótt þingmenn séu kjörnir til setu á Alþingi fyrir eitt kjördæmi eru þeir í raun þingmenn alls landsins og mikilvægt að þeir kynnist þeim málum sem mest brenna á fólki, á hverjum stað og í hverju kjördæmi. Fundirnir verða óformlegri en oft áður og munu allir þingmenn taka virkan þátt í hverjum fundi með spjalli við fundarmenn.

Dagskrá ferðarinnar má finna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins xd.is þar sem einnig verða birtar fréttir úr hringferðinni sem og á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir