Skordýr í poppmaís

Á heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að skordýr hafa fundist í poppmaís frá Coop. Um er að ræða 500g einingu sem merkt er með best fyrir dagsetningunni 22.10.2019. Samkaup er að innkalla vöruna úr verslunum og frá neytendum. 

Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi best fyrir dagsetningu:

Vöruheiti: Coop Popcorn
Þyngd: 500g
Best fyrir dagsetning: 22.10.2019
Framleiðsluland: Danmörk
Dreifing: Verslanir Kjörbúða, Krambúða, Nettó, Strax, Háskólabúð – HÍ og Seljakjör.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir