Spilakvöld á Hofsósi

Spilakvöld verður haldið í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi föstudaginn 8. mars kl 20. Það verður gott úrval borðspila frá bókasafninu á staðnum en fólk er einnig hvatt til að taka með sér spil að heiman.

Engin veitingasala á staðnum en heitt verður á könnunni og heimilt að grípa með sér drykki og nasl að heiman.
Byggjum upp Hofsós styrkir viðburðinn og er aðgangur því ókeypis, Fríða og Stína hlakka til að sjá sem flesta. 

Fleiri fréttir