Spjallað um landbúnað á Facebooksíðu SSNV

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra efna til spjalls um landbúnað á Facebooksíðu sinni dagana 1. – 5. febrúar næstkomandi. Samtökin fá til liðs við sig nokkra viðmælendur sem hafa ýmislegt til málanna að leggja hvað landbúnað varðar og eiga við þá hálftíma spjall um landbúnaðarmálin sem eru íbúum Norðurlands vestra svo mikilvæg.

Dagskráin er eftirfarandi:

1. febrúar - Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur og sérfræðingur í tollamálum.
2. febrúar - Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST.
3. febrúar - Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra.
4. febrúar - Hólmfríður Sveinsdóttir, ráðgjafi.
5. febrúar - Þrír frumkvöðlar í vinnslu landbúnaðarafurða, Hildur Þóra Magnúsdóttir frá Pure Natura, Pétur Pétursson frá Jöklavíni og Þórhildur M. Jónsdóttir, formaður Félags smáframleiðenda og verkefnisstjóri Vörusmiðju Biopol.

Samtalið hefst kl. 11.30 alla dagana og mun standa í 30 mínútur.

Áhugasömum gefst kostur á að senda inn spurningar til viðmælenda í með því að senda póst á ssnv@ssnv.is, eða með því að setja inn spurningar í umræðuþráðinn á viðburðinum á Facebook. Þær spurningar sem berast verða bornar upp í spjallinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir