Staða skólastjóra á Skagaströnd laus til umsóknar

Staða skólastjóra við Höfðaskóla á Skagaströnd hefur verið auglýst laus til umsóknar. Í auglýsingu sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu um helgina segir að leitað sér að metnaðarfullum einstaklingi sem búi yfir þekkingu, hæfni og áhuga til að veita faglega forystu í skólastarfi. Mikið og gott starf hafi verið unnið í skólanum síðustu ár og þurfi nýr skólastjóri að hafa áhuga á því að halda þeirri vinnu áfram og þróa enn frekar. Skólinn notar spjaldtölvur í námi og kennslu með markvissum hætti og hafa kennarar sótt fjölmörg námskeið um notkun þessara tækja í skólastarfi.

Nýr skólastjóri þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. ágúst næstkomandi.

Í Höfðaskóla eru um 80 nemendur í 1.-10. bekk og koma nemendur frá Skagaströnd og Skagabyggð. Kennarar og annað starfsfólk skólans mynda vel menntað og áhugasamt teymi. Húsnæði skólans og allur aðbúnaður er góður. Stutt er í íþróttahús og tónlistarskóla og er gott samstarf þar á milli.

Hlutverk skólastjóra er m.a. að veita faglega forystu og móta framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla, stýra og bera ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans, bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun og bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.

Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf sem grunnskólakennari og farsæla kennslureynslu í grunnskóla. Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða farsæl stjórnunarreynsla er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa vilja til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhuga á þróunarstarfi, vilja og áhuga á nýtingu upplýsingtækni í skólastarfi, þ.m.t. snjalltækja, hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og metnað og kostur er að hafa færni og reynslu í starfsmannastjórnun sem og í fjármálastjórnun og áætlanagerð.

Umsóknarfrestur er til og með 24. mars n.k. og skal umsóknum skilað á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.

Með umsókn skal skila starfsferilsskrá, nöfnum tveggja umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi. Umsækjandi þarf að veita leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Frekari upplýsingar um starfið veitir skólastjóri í síma 4522800 eða netfangið hofdaskoli@hofdaskoli.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir