Starfsemi fjölritunarstofunnar Grettis hætt um áramótin
Sagt er frá því á Húnahorninu að starfsemi Fjölritunarstofunnar Grettir sf. á Blönduósi verði hætt um áramót. Þar með verður útgáfu á auglýsinga- og sjónvarpsdagskránni Glugganum hætt, sem og annarri starsemi fyrirtækisins í núverandi mynd.
Glugginn hefur komið út í rúmlega 30 og verið fastur punktur í tilveru Húnvetninga og kærkominn gestur á heimilum þeirra, eins og segir í fréttinni. Það eru þeir Skarphéðinn Ragnarsson og Unnar Agnarsson sem eiga Fjölritunarstofuna Gretti en þeir keyptu fyrirtækið af Baldri Valgeirssyni árið 1986.
Haft er eftir Skarphéðni að starfsemi Grettis verði hætti af þeirra hálfu um áramótin og megi því segja að þeir séu að leggja fyrirtækið niður. Spurður hvað tæki við segist hann vona að einhver eða einhverjir sjái tækifæri í að halda starfsemi sem þessari áfram, en það verði bara að koma í ljós.
Fjölritunarstofan Grettir hefur, ásamt útgáfunni á Glugganum, séð um prentun á reikningum og eyðublöðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Flestir eru viðskiptavinirnir úr Austur-Húnavatnssýslu en nokkrir koma frá höfuðborgarsvæðinu. Grettir hefur einnig séð um prentun á dreifibréfum og sölu á pappír.