Strandir 1918 - Ferðalag til fortíðar

Út er komin bókin Strandir 1918: Ferðalag til fortíðar en það eru Sauðfjársetur á Ströndum og Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Ströndum - Þjóðfræðistofa sem gefa hana út. Ritstjóri er Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðingur, en hún er einnig höfundur greinar í bókinni.

Í fréttatilkynningu um útgáfu bókarinnar segir:

„Árið 1918 var merkilegt ár í sögu þjóðarinnar. Ísland fékk fullveldi og ýmsir stórviðburðir settu svip á mannlíf og samfélag. Hér er athygli beint að viðburðum og daglegu lífi á Ströndum á þessum tíma, birtar dagbækur, ferðasögur og fræðigreinar. Fjallað er um líf og störf fólks í Strandasýslu fyrir rúmri öld, á tímum sem standa okkur býsna nærri. Samt er margt við daglegt amstur fólks fyrir 100 árum framandi í samtímanum.“

Höfundar efnis í bókinni eru Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur, sem jafnframt er ritstjóri, Skagfirðingurinn Eiríkur Valdimarsson, Hafdís Sturlaugsdóttir og Jón Jónsson. Þá skrifar forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson formála að bókinni.  Einnig er þar birt ferðasaga eftir Guðmund Hjaltason og búnaðaryfirlit eftir Sigurð Sigurðsson sem ferðaðist um allar Strandir. Þá er tvö dagbókabrot að finna í bókinni eftir þá Níels Jónsson á Grænhóli á Gjögri og Þorstein Guðbrandsson á Kaldrananesi.   

Bókin gefur góða innsýn í daglegt líf og hversdagsleg störf fólks á Ströndum á sögulegum tímum og er áhugaverð lesning fyrir alla sem hafa áhuga á þjóðlegum fróðleik, sögu og náttúru. 

Með útgáfu bókarinnar Strandir 1918 er rekinn endahnútur á samnefnt verkefni sem hefur staðið yfir frá árinu 2018 á vegum Sauðfjársetursins og Rannsóknarseturs HÍ á Ströndum. 

Bókin er einungis seld beint frá Sauðfjársetrinu á Ströndum og er hægt að tryggja sér eintak í síma 693-3474, á saudfjarsetur@saudfjarsetur.is eða á Facebooksíðu Sauðfjársetursins en þar má einnig sjá myndir frá rafrænu útgáfuteiti sem haldið var sl. sunnudag. Bókin kostar 4.200 krónur en kr. 4.700,- með sendingarkostnaði. Hægt er að fá hana senda hvert á land sem er. Þess má einnig geta að á fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld verður bókapöntunum keyrt heim á svæðinu frá Hrútafirði til Drangsness (sjá auglýsingu á Facebooksíðu Sauðfjársetursins).

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir