Súkkulaðidýfa frá Vilko
Vilko á Blöduósi hefur hafið framleiðslu á súkkuladýfu sem hita má hvort sem er í ofni eða á útigrilli. Ekki þarf nema bakka af dýfunni og þokkalegt hugmyndaflug til að gera fullkominn sælkerarétt.
Dýfan, sem unnin er úr besta fáanlega hráefni frá Callebaut í Belgíu, er í álbakka sem upplagt er að skella á útigrillið. Nettóþyngd í hverjum bakka er 200 gr. Hægt er að nota ljúffengt súkkulaðið til að skreyta eftirrétti, hjúpa sykurpúða eða ávexti - eða bara hvað sem fólki dettur í hug. Allt bragðast eins sælgæti þegar búið er að dýfa því í ljúffenga súkkulaðiblönduna. Einfaldara getur það ekki verið, segir í tilkynningu frá Vilko.
