Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins

Næsta sunnudag, 28. maí, kl. 15:00 verður sýningin Prjónað af fingrum fram opnuð í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Sýningin er samstarfsverkefni Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Kristínar Schmidhauser Jónsdóttur. Kristín er höfundur samnefndar bókar um Aðalbjörgu Jónsdóttur þar sem fjallað er um handverk og listsköpun Aðalbjargar en hún starfaði lengst af sem kjólameistari. Eftir sextugt hóf hún að prjóna eingirniskjóla, undurfína samkvæmiskjóla sem voru útprjónaðir í hinum ýmsu mynstrum og formum, og gerði hún það bókstaflega af fingrum fram.
Aðalbjörg, sem varð 100 ára þann 15. desember síðastliðinn, opnar sýninguna ásamt dóttur sinni, Ragnhildi Hermannsdóttur, og langömmubarn Aðalbjargar, Íris Árnadóttir, mun syngja við opnunina.
Konur sem eiga handprjónaða kjóla eru hvattar til að draga þá fram í dagsljósið í tilefni opnunarinnar og klæðast þeim. Viðstöddum verður boðið upp á kaffi og tilheyrandi.
Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.