Þjóðhátíðardagskráin á Blönduósi

Mikið verður um að vera á Blönduósi á þjóðhátíðardaginn en Hestamannafélagið Neisti hefur umsjón hátíðarhöldum. Þá verður farið í hefðbundna skrúðgöngu, börnum boðið á hestbak, farið í útsýnisflug, fjallkonan lætur sjá sig, og margt fleira.  

Hátíðardagskrá þann 17. júní á Blönduósi:

Kl. 8:00
Fánar dregnir að hún.

Kl. 10:00 -11:00
Börnum boðið á hestbak í Reiðhöllinni Arnargerði.

Kl. 11:00
Guðsþjónusta í Blönduósskirkju

Kl. 11:00 -12:00
Dorgveiðikeppni á bryggjunni (þátttakendur eru á eigin ábyrgð og eiga að vera í björgunarvestum).

Kl. 12:30 -13:30
Andlitsmálun fyrir utan SAH afurðir helíumblöðrur og annað sem tilheyrir verður til sölu (ekki tekið við greiðslukortum)

Kl. 13:30
Skrúðganga frá SAH Afurðum á Bæjartorg

Á Bæjartorgi verður hátíðardagskrá;
Hugvekja
Fjallkonan
Hátíðarræða
Tónlist
Leikir fyrir börn á Þríhyrnutúni

Kl. 14:30 -16:30
Kaffisala í Félagsheimilinu, vöfflukaffi (ekki tekið við greiðslukortum)

Útsýnisflug
Útsýnisflug frá Blönduósflugvelli að hætti Magnúsar Ólafssonar ef veður leyfir. Laugardaginn 16. júní frá klukkan 10:00 og eitthvað fram á daginn. Sunnudaginn 17. júní frá klukkan 16:00. Gjald 1.500 krónur fyrir stutt flug en 2.000 krónur fyrir lengra flug (ekki tekið við greiðslukortum). Skráning í flugskýlinu e9a í síma 898 5695.

Sund
Sundlaugin verður opin frá 10:00 – 16:00

 

Fleiri fréttir