Tímabundinn afsláttur af gatnagerðargjöldum

Hvammstangi. MYND HÚNAÞING VESTRA
Hvammstangi. MYND HÚNAÞING VESTRA

Á vef Húnaþings vestra kemur fram að sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á 377. fundi sínum þann 11. janúar 2024 framlengingu heimildar til niðurfellingar gatnagerðagjalda nokkurra íbúðarhúsalóða á Hvammstanga og Laugarbakka.

Heimildin gildir til 31. desember 2024. Niðurfellingin er í samræmi við 6. gr. laga nr. 153/2006 og 5. gr. samþykktar Húnaþings vestra um gatnagerðargjöld nr. 1325/2023.

Lóðirnar eru eftirfarandi:

Á Hvammstanga;

  • Bakkatún 3
  • Bakkatún 5
  • Bakkatún 7
  • Grundartún 2
  • Grundartún 17
  • Hlíðarvegur 21

Á Laugarbakka;

  • Teigagrund 7
  • Gilsbakki 1-3

Nánari upplýsingar um lausar lóðir má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir