Tvísöngur og kvæðalagahefðin í Vatnsdal
Námskeið í kveðskap og söng verður haldið í gömlu kirkjunni á Blönduósi laugardaginn 17. nóvember frá kl. 11 til 17. Samkvæmt Húna.is læra þátttakendur á námskeiðinu að kveða og syngja kvæða og tvísöngsslög sem tengjast Vatnsdalnum og Húnavatnssýslum og fjallað verður um þessa sönghefð sem var mjög sterk í þessum landshluta.
Kennari er Bára Grímsdóttir frá Grímstungu í Vatnsdal. Námskeiðshefti verður dreift til þátttakenda. Skráning á námskeiðið er hjá Jóni Gíslasyni í síma 452 4077 og á netfangið info@vatnsdalur.is. Skráningafrestur er til og með 12. nóvember.
Námskeiðsverð er kr. 4.500 og innifalið er í verði súpa og brauð í hádegi og kaffi. Takmarkaður þátttakendafjöldi verður á námskeiðinu.
Námskeiðið er öllum opið og er haldið á vegum félagsins Landnám Ingimundar gamla, með styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra.
