Umhverfisverðlaun Skagastrandar
Sveitarfélagið Skagaströnd hefur ákveðið að efna til umhverfisverðlauna í sveitarfélaginu. Þá verða þrenn verðlaun veitt og er fólk hvatt til þess að taka höndum saman og gera fallega bæinn enn fallegri.
Veitt verða verðlaun í flokkunum
- Snyrtilegustu og best hirtu götuna.
- Snyrtilegasta/fallegasta garðinn.
- Snyrtilegasta fyrirtækið.
Meðlimir í Soroptimistaklúbbnum við Húnaflóa munu skipa dómnefndina þetta árið og munu vera á ferðinni í júlí. Vinningshafar verða tilkynntir í ágúst.