Úr smiðju vefarans mikla - Sumarsýning Heimilisiðnaðarsafnsins 2011

Yfirlitssýning á verkum Guðrúnar J. Vigfúsdóttur veflistakonu frá Ísafirði, verður opnuð laugardaginn 4. júní nk. kl. 14.00 á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Eyrún Ísfold Gísladóttir, dóttir listakonunnar, ræðir við gesti og opnar sýninguna.

Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson stíga á stokk með ljúfan tónlistarflutning og að vanda verður boðið upp á kaffi og kleinur, mjólk eða kókómjólk fyrir börnin.

Aðgangur er ókeypis á opnunina og allir hjartanlega velkomnir.

Heimilisiðnaðarsafnið verður opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst frá kl. 10.00 - 17.00

Fleiri fréttir