Úrslit í stærðfræðikeppni 9. bekkinga

Verðlaunahafarnir þrír. Mynd: mtr.is
Verðlaunahafarnir þrír. Mynd: mtr.is

Í gær var keppt til úrslita í stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, Menntaskólans á Tröllaskaga og níundu bekkja í grunnskólum á Norðurlandi vestra og Tröllaskaga. Keppnin fór fram á Ólafsfirði í gær. Á vef Menntaskólans á Tröllaskaga segir að keppnin hefi verið jöfn og spennandi og keppendur allir sjálfum sér og skólum sínum til sóma. Þetta er í tuttugasta og annað sinn sem keppnin er haldin.

Í fyrsta sæti varð Hjalti Freyr Magnússon, Grunnskóla Húnaþings vestra. Þorsteinn Jakob Klemensson í Dalvíkurskóla varð í öðru sæti og Jóhann Gunnar Eyjólfsson í Árskóla í þriðja sæti. Að keppni lokinni fóru allir keppendur heim með smá glaðning og vegleg verðlaun voru veitt fyrir efstu þrjú sætin.  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir