Val á framboðslista hjá Framsóknarflokki

Kjördæmasambönd Framsóknarflokks hafa ákveðið aðferð við val á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Í fjórum kjördæmum geta allir þeir sem skráðir voru í flokkinn 30 dögum fyrir valdag tekið þátt í valinu. Suðurkjördæmi og Suðvesturkjördæmi verða með lokuð prófkjör en póstkosning fer fram í Norðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi. Í Reykjavík verður uppstilling og framboðslistar afgreiddir á aukakjördæmaþingi. 

Í Norðvesturkjördæmi fer fram póstkosning og munu valdagar standa frá 16. febrúar til og með 13. mars 2021.
Kosið verður um fimm efstu sætin.
Kjörskrá lokar 30 dögum fyrir valdag póstkosningarinnar eða fyrir miðnætti laugardaginn 16. janúar 2021.
Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 1. febrúar klukkan 12 á hádegi 15 dögum fyrir valdag.

Nánari upplýsingar af framboðsmálum hjá Framsókn má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir