Vilkó fær viðbótarhúsnæði

Jóhannes afhendir Kára lyklana. Mynd: huni.is
Jóhannes afhendir Kára lyklana. Mynd: huni.is

Á fréttavef Húna segir frá því að föstudaginn 24. júlí síðastliðinn hafi Vilkó formlega fengið afhenta nýbyggingu fyrir starfsmenn Vilkó. Var það Jóhannes Torfason framkvæmdastjóri Ámundakinnar sem afhenti Kára Kárasyni lyklavöldin. Viðstaddir athöfnina voru starfsmenn Vilkó og Ámundakinnar ásamt verktökum er að verkinu komu.

Um ræðir 160 m2 húsnæði sem hugsað er sem vörumóttaka og lager, annars vegar fyrir hráefni sem nýtt er til framleiðslunnar og hins vegar fyrir fullunnar vörur. Allt að 80 vörubretti komast fyrir í rýminu. Í nýbyggingunni er einnig lyfta til að þjónusta efri hæð hússins sem og kjallara aðalbyggingarinnar en í því fellst mikil vinnuhagræðing fyrir starfsfólk Vilkó. Í fréttinni segir: „Við athöfnina sagði Jóhannes að þetta verkefni hefði verið sér kært þar sem húsnæðið, þekkt sem Mjólkurstöðin, hefði öðlast nýtt líf eftir að hafa staðið ónotað í nær áratug. Starfsfólk Vilkó er nú orðið fleira en var á þeim tíma er mjólkurvinnsla fór þar fram. Jóhannes rifjaði upp að mjólkurvinnsla hófst í húsinu árið 1948 og stóð samfellt í um 60 ár. Þegar henni var hætt gaf Auðhumla, þáverandi eigandi hússins, það fyrirheit að styðja við nýja atvinnustarfsemi í húsinu. Má segja að það fyrirheit hafi verið uppfyllt þegar Ámundakinn keypti húsið af Auðhumlu og Vilkó flutti sína starfsemi þangað í kjölfarið.“

Í fréttinni segir jafnframt: „Kári Kárason þakkaði í ræðu sinni Ámundakinn og nefndi kosti þess að í héraðinu væri fyrirtæki eins og Ámundakinn sem væri í raun bakhjarl til heilla fyrir heimabyggð. Nefndi Kári að nægt pláss væri enn á lóðinni því Vilkó væri ætíð í leit að nýjum vörum og leiðum til sóknar. Valdimar O. Hermannsson bæjarstjóri Blönduósbæjar flutti kveðju og árnaðaróskir frá bæjarstjórninni.“

/SHV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir