A-Húnavatnssýsla

Flugeldasölur og gamlársbrennur í Húnavatnssýslum

Brenna og flugeldasýning verða á sínum stað á gamlárskvöld á Blönduósi á vegum Björgunarfélagsins Blöndu. Í Glugganum segir að kveikt verði í brennunni kl. 20:30 og hefst flugeldasýningin skömmu síðar. „Verið er að safna styrktaraðilum að flugeldasýningunni til að hún verði enn glæsilegri en áður,“ segir í auglýsingunni. Flugeldasala er aðal fjáröflun Björgunarsveitanna.
Meira

Húnabjörg fylgir fiskibáti til hafnar

Björgunarbáturinn Húnabjörg kom 9 tonna fiskibáti til aðstoðar úti á Húnaflóa í dag og fylgdi honum til hafnar á Skagaströnd. Báturinn hafði fengið á sig brotsjó og komst sjór í stýrishús og vistarverur. mbl.is greinir frá.
Meira

Ferðaveður með versta móti

Í dag er suðaustan 10-15 og él á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hiti um frostmark. Mjög djúp lægð gengur yfir landið með vaxandi austan- og norðaustanátt í kvöld, 18-23 m/s og slydda í nótt. Hægari um tíma í fyrramálið en snýst síðan í hvassa suðvestanátt, allt að 18-25 m/s á Norðurlandi með éljum eða slydduéljum og lélegu skyggni. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar verður ferðaveður með versta móti víðast hvar í kvöld og nótt.
Meira

Stúlkan útskrifuð af gjörgæslu

Stúlka, sem slasaðist al­var­lega í vélsleðaslysi í Aust­ur-Húna­vatns­sýslu á laugardag, var út­skrifuð af gjör­gæslu­deild í gær og ligg­ur á Barna­spítala Hrings­ins, sam­kvæmt heimildum mbl.is. Stúlkurnar voru tvær á sleðanum þegar slysið varð en hin stúlk­an var út­skrifuð af Land­spít­al­an­um eft­ir skoðun á laugardagskvöld en hún var farþegi á sleðanum.
Meira

Enn á gjörgæslu eftir vélsleðaslys

Líðan stúlku, sem slasaðist alvarlega í vélsleðaslysi á sveitabæ í Austur-Húnavatnssýslu í gær, er stöðug samkvæmt heimildum Rúv. Hún er á gjörgæsludeild Landspítalans. Stúlka sem var með henni á sleðanum var útskrifuð af spítalanum í gærkvöldi.
Meira

Fluttar með sjúkraflugi eftir alvarlegt vélsleðaslys

Tvær ungar stúlkur voru fluttar í kvöld með sjúkraflugi eftir alvarlegt vélsleðaslys við sveitabæ í Austur-Húnavatnssýslu. Ökumaður sleðans er alvarlega slösuð, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi, en sleðinn hafnaði undir heyrúlluvagni er hún missti stjórn á sleðanum. Það er rúv.is sem greinir frá.
Meira

Vaxandi suðaustanátt og slydda á morgun

Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á vegum. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er sunnan 3-10, bjart veður og minnkandi frost. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 13-20 og slydda seinnipartinn á morgun, en mun hægari seint annað kvöld, einkum vestantil. Hiti 0 til 5 stig.
Meira

Gleðileg jól

Feykir óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Meira

Samkaup styrkir Styrktarsjóð Húnvetninga

Árlega úthlutar Samkaup styrkjum samfélagsmála í desembermánuði, er þetta gert samkvæmt stefnu félagsins um samfélagslega ábyrgð. Að þessu sinni voru styrkirnir þrettán talsins og á meðal styrkþega var Styrktarsjóður Húnvetninga. Húni.is greinir frá.
Meira

Vetrarsólstöður í dag

Margir fagna eflaust vetrarsólstöðum, en þær eru einmitt í dag, 22. desember og að þeim loknum tekur daginn að lengja á ný. Á vefsetri Almanaks Háskóla Íslands kemur fram að tíminn frá sólaruppkomu til sólarlags þennan dag er 4 klukkustundir og 8 mínútur í Reykjavík. Þar er einnig að finna upplýsingar um dögun, birtingu, sólris, hádegi, sólarlag, myrkur og dagsetur á sjö daga fresti fyrir Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri, Grímsey, Norðfjörð og Vestmannaeyjar. En hvers vegna verða vetrarsólstöður?
Meira