A-Húnavatnssýsla

Harðnandi frost næstu daga

Nokkur hálka er í Húnavatnssýslum en vegir að mestu auðir í Skagafirði en þó er hálka á Siglufjarðarvegi fyrir utan Hofsós. Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustlæg átt 8-15 m/s og úrkomulítið, en dálítil snjókoma í kvöld. Frost 0 til 8 stig.
Meira

Fjárhagsáætlanir Skagastrandar samþykktar

Sveitarfélagið Skagaströnd samþykkti fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2016 og 2017 -2019 á fundi sínum 14. desember sl. Í fundargerð kemur fram að gert er ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu í áætlun næsta árs um rúmar 9 milljónir króna. Í rekstraryfirliti áætlunar 2016 kemur fram að heildartekjur samstæðu eru áætlaðar 561 milljónir kr., þar af eru skatttekjur tæpar 392 milljónir kr. og rekstrartekjur rúmar 170 milljónir kr. Rekstrargjöld eru áætluð tæpar 566 milljónir kr., þar af kostnaður vegna launa áætlaður tæpar 242 milljónir kr.
Meira

„Góður dagur á Norðurlandi vestra“

„Ég er afar glaður að þetta skuli hafa klárast með þessum hætti. Það er ekki annað hægt, þetta verða rúmlega þrjátíu störf og 316 milljónir, þannig að það er alveg ljóst að þetta er veruleg innspýting inn á svæðið. Þetta er góður dagur,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, formaður Norðvesturnefndarinnar, um þá ákvörðum Ríkisstjórnarinnar, sem tekin var í morgun, að samþykkja 15 af 30 tillögum sem Norðvesturnefndin setti fram í skýrslu í desember á síðasta ári.
Meira

Kosning á Manni ársins 2015 á Norðurlandi vestra hafin

Eins og undanfarin ár geta íbúar á Norðurlandi vestra kosið mann ársins, úr hópi þeirra sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is. Í þetta skiptið bárust sjö tilnefningar til titilsins og verður kosið á milli þeirra sem hér eru nefndir í kosningunni Maður ársins á Norðurlandi vestra 2015.
Meira

Vinsæl lög frá síðustu öld

Hljómsveitin Demó, ásamt fjölda söngvara, heldur tvenna tónleika í Félagsheimilinu á Blönduósi milli jóla- og nýárs. Á efnisskránni eru vinsæl lög frá síðustu öld, eins og segir í auglýsingu. Tónleikarnir verða 26. og 27. desember og hefjast báðir klukkan 20:30.
Meira

Léttitækni ehf. gefur endurskinsvesti

Léttitækni ehf. á Blönduósi ákvað á dögunum að sleppa öllum jólakortum þetta árið en gefa þess í stað öllum krökkum í 1. og 2.bekk grunnskólanna í A-Hún. endurskinsvesti. „Nú þegar skammdegið er skollið á er nauðsynlegt að huga vel að börnunum sem þurfa að komast úr og í skóla en þá er myrkrið mikið,“ segir á húna.is.
Meira

Opið hús hjá Nes listamiðstöð

Nes listamiðstöð á Skagaströnd verður með opið hús næstkomandi sunnudag, 20. desember, og eru gestir boðnir velkomnir í stúdíóið að Fjörubraut 8 á Skagaströnd á milli kl. 15 og 17.
Meira

Hvassviðri á Norðurlandi vestra í dag

Búast má við norðaustan hvassviðri eða stormi og hríðarbyl á öllu norðanverðu landinu í dag með takmörkuðu skyggni, hvassast er á NV-verðu landinu. Hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum á Norðurlandi vestra.
Meira

Verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt

Magnús Jósefsson og Líney Árnadóttir í Steinnesi fengu verðlaun fyrir mestar afurðir á árinu 2015, með meðalafurðir 34 kg eftir ær tveggja vetra og eldri, á árshátíð búgreinafélaganna í Austur-Húnavatnssýslu. Á árshátíðinni, sem haldin var fyrir skömmu, var bændum veitt verðlaun fyrir frábæran árangur í sauðfjárrækt á liðnu ári.
Meira

Jólaleg Höskuldsstaðakirkja

Þessa fallegu mynd af Höskuldsstaðakirkju í Skagastrandarprestakalli, sem er í Húnavatnsprófastsdæmi, tók Höskuldur B. Erlingsson á dögunum. Á Höskuldsstöðum var prestssetur til 1964, þegar það var flutt til Skagastrandar og kaþólskar kirkjur voru helgaðar Maríu guðsmóður og Pétri postula.
Meira