Á bleikum náttkjólum | Leiðari 38. tbl. Feykis
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Svo orti Megas en sá skálkur lést í sumar saddur lífdaga væntanlega. Íslenska þjóðin á í ástar/haturssambandi við Megas. Við viðurkennum hans miklu skáldhæfileika en við eigum erfiðara með að samþykkja manninn. Sögur um hegðun hans flugu um samfélagið og margar þeirra byggðar á staðreyndum, aðrar líklega skáldskapur. Megas hafði marga djöfla að draga og og var einn sá andstyggilegasti, fíknardjöfullinn. Það hefur sagt mér maður sem þekkti Megas sem ungan mann að kunningjahópurinn hafi ekki reiknað með að hann yrði langlífur. En hann varð nú samt áttatíu og eins árs.
Megas var uppreisnarseggur. Hann réðst á helgimyndir og braut þær. Það má segja það sama um Halldór Laxness. Báðir vildu sína fram á að íslenskar staðalímyndir af þjóðhetjum væru kannski ekki réttar. Halldór tætti Fóstbræðrasögu og aðrar Íslendingasögur sundur og saman í háði í Gerplu og Megas sagði þetta um Listaskáldið góða: „Sauðdrukkinn úti í hrauni lá Hallgrímsson Jónas.” Það er því nokkuð háðsk staðreynd að mörgum árum seinna fékk Megas verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.
Erindið hér í upphafi er úr Ljóði Megasar, Tvær stjörnur. Hann sagði frá því í viðtali að ljóðið væri ort til ungs manns sem hann hafði verið hrifinn af og meira að segja búið með um tíma. Í sama viðtali sagði hann að margt fólk hefði haft samband við hann og þakkað fyrir ljóðið. Það væri athyglisvert að fólk tengdi við það á misjafnan hátt. Það sem honum þótti vænt um að fólk sem hefði misst börnin sín fyndi huggun í ljóðinu og tengdi við það. Er það ekki góður mælikvarði á að þetta sé nokkuð gott ljóð?
Ég er í sömu stöðu og sjálfsagt megnið af þjóðinni. Ég á frekar erfitt með Megas því að á sama tíma og hægt er að hrífast af skáldinu og tónlistarmanninum er einhver ónotatilfinning sem fylgir. Sannarlega vill maður vera umburðarlyndur og meta það sem gott er umfram það slæma. Er þetta kannski áskorun um að láta á það reyna?
Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær
stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær.
Ég man þig þegar augu mín eru opin hverja stund
en þegar ég nú legg þau aftur fer ég á þinn fund.
Fyrirsögnin er sótt í titil einnar af hljómplötum Megasar sem hann gerði með Spilverki þjóðanna. Hugmyndin er að minna á Bleikan október. Kaupum bleiku slaufuna á bleikum náttkjólum.
Hinrik Már Jónsson
