KPMG opnar fyrir umsóknir um samfélagsstyrki 2027
KPMG hefur tekið upp skýrara og markvissara fyrirkomulag við veitingu samfélagsstyrkja á landsbyggðinni. Markmiðið er að tryggja að stuðningur félagsins nýtist þar sem hann getur haft mest jákvæð áhrif og styðji við verkefni sem skapa virði fyrir samfélagið. Með nýrri styrktarstefnu er lögð aukin áhersla á samfélagsleg áhrif verkefna og hvernig þau falla að framtíðarsýn KPMG um langtímaverðmætasköpun fyrir samfélagið. Jafnframt er lögð áhersla á gagnsætt umsóknarferli, skýrari forgangsröðun og betri yfirsýn yfir þann árangur og þau áhrif sem stuðningurinn skilar.
Ár hvert verður kallað eftir umsóknum um samfélagsstyrki og verður umsóknartímabilið að jafnaði opið í október og nóvember. Með því vill KPMG skapa jafnt aðgengi að styrkjum og gefa félagasamtökum og öðrum samfélagsverkefnum í hverjum landshluta tækifæri til að sækja um stuðning.
Samfélagsstyrkirnir eru liður í því að efla stuðning KPMG við samfélagið og styðja við verkefni sem hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf, menntun, nýsköpun, sjálfbærni og samfélagslega velferð. Jafnframt mun KPMG birta árlegt yfirlit yfir þau verkefni sem hljóta stuðning.
„Norðurland er fullt af fólki sem tekur frumkvæði, leggur hart að sér og vinnur að verkefnum sem skipta samfélagið máli. Samfélagsstyrkirnir eru ein leið fyrir okkur til að styðja við þessa öflugu starfsemi og taka þátt í uppbyggingu samfélagsins,“ segir Helgi Níelsson meðeigandi KPMG á Norðurlandi.
Umsóknarferli fyrir árið 2027 hefur nú verið opnað. Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknarfyrirkomulag má finna á vefsíðu KPMG Stuðningur við samfélagið.
/fréttatilkynning
