10. bekkur Varmahlíðarskóla í íþróttamaraþoni
Síðasti liður í fjáröflun 10. bekkjar í Varmahlíðarskóla fyrir Danmerkurferðina í vor er sólahrings íþróttamaraþon. Það hófst stundvíslega klukkan 12.10 í gær og hefur nú, þegar þetta er skrifað, staðið í um 23 tíma.
Að sögn Helgu Rósar Sigfúsdóttur umsjónarkennara 10. bekkjar hóf allur skólinn leika með þeim og keppti hver bekkur í sérvalinni grein við 10. bekk auk þess sem starfsmenn og 10. bekkur öttu kappi. „Áheitasöfnun gekk nokkuð vel og ekki er hægt að segja annað en að krakkarnir séu samviskusemin uppmáluð að passa upp á að alltaf sé einhver á hreyfingu. Að lokum vilja nemendur í 10. bekk þakka öllum þeim sem hafa stutt þá með einum eða öðrum hætti í vetur,“ segir Helga Rós.
Íris Olga Lúðvíksdóttir tók meðfylgjandi myndir.