Vilja að slökkvibifreiðar verði undanþegnar kílómetragjaldi

Sveitarstjórn Skagafjarðar óskar eftir því að slökkvibifreiðar sveitarfélaga verði undanþegnar kílómetragjaldi eins og björgunarbifreiðar. Í frétt á mbl.is segir að þetta komi fram í umsögn sveitarfélagsins um drög fjármála- og efnahagsráðuneytisins að breytingum á lögum um kílómetragjald.

Í umsögninni segir að slökkvilið sinni lögbundnu öryggis- og neyðarhlutverki og að akstur slökkvibíla sé ekki valkvæð atvinnustarfsemi. Í víðfeðmum sveitarfélögum þurfi viðbragðsaðilar oft að aka langar vegalengdir til þess að sinna útköllum og getur gjaldið því orðið að umtalsverðum viðbótarkostnaði við lögbundna almannavarnarþjónustu.

Heimild: mbl.is

Fleiri fréttir