Spennandi tímar framundan hjá Valdísi
Það hefur mögulega ekki farið framhjá þeim sem sitja langdvölum með símann í höndunum og skrolla sér til skemmtunar í gegnum Spotify og Instagram að VALDÍS er að gefa út ný lög. Valdís er 26 ára gömul söngkona frá Sauðárkróki, dóttir Önnu Sigríðar Stefánsdóttur og Valbjörns Geirmundssonar, og hefur verið á kafi í tónlist frá unga aldri. Fyrir utan tónlistina þá á hún og rekur Snyrtistofu Valdísar sem er staðsett í Villunni á Hólaveginum á Króknum.
Valdís hefur síðustu árin sent frá sér nokkur lög, áheyrilegt og grípandi popp sem hefur ratað á íslensku vinsældalistana. Þar má nefna lögin Piece Of You, Get Better og Let's Get Lost Tonight og síðan Þagnir hljóma vel sem hún flutti ásamt JóaPé en það lag fór alla leið á topp Vinsældalista Rásar2. Það var því ekki úr vegi að senda Valdísi nokkrar spurningar.
Hvað stendur til Valdís, ertu að senda frá þér fullt af lögum? „Já, það er margt spennandi framundan! Ég gaf út lagið lose myself í september sem er fyrsti síngúllinn af fyrstu EP-plötunni minni sem er væntanleg á næsta ári. Næsta lag heitir you can do a lot with a broken heart og [kom] út 16. október. Ég samdi bæði lögin með Hákoni Guðna og Klöru Elias og Hákon pródúseraði lögin. Við erum svo að vinna í fleiri lögum fyrir plötuna og ég er mjög spennt að leyfa fólki að heyra!“
Valdís bætir við að hún er einnig að vinna í verkefni með bresku góðgerðarsamtökunum In Place Of War sem eru að framleiða heimildarmynd um loftslagsbreytingar. „Ég samdi lag fyrir myndina með Halldóri Gunnari [Fjallabróður] og Soffíu Meldal í lagahöfundabúðum á Arnarstapa. Í sumar kom tökuteymi til landsins til að taka mig upp fyrir myndina og gera tónlistarmyndband við lagið og þetta er búið að vera þvílík upplifun og reynsla. Ég fór líka til London í sumar á London Climate Action Week og kom fram á fimm viðburðum þar, meðal annars í Sony Music þar sem ég var að kynna lagið og myndina. Myndin er svo væntanleg í sýningu á næsta ári.“
Er ekkert mál að búa á Sauðárkróki og búa til popptónlist? „Nei, mér finnst það ekkert vera vandamál. Ég fer reglulega til Reykjavíkur til að vinna í tónlistinni, þar sem flestir sem ég vinn með búa þar, en ég get líka alveg unnið í hugmyndum hérna heima. Mér finnst mjög gott að búa hérna og finnst ekkert mál að ferðast á milli.“
Hvernig myndirðu lýsa tónlistinni fyrir þeim sem hafa ekki heyrt í þér áður? „Ég myndi lýsa tónlistinni minni sem Scandipop – eða skandinavískri popptónlist.“
Þú semur tónlist í samstarfi við aðra, meðal annars í tónlistar-búðum. Hvernig fer slíkt samstarf fram og hvað finnst þér þú læra mest af því að semja með öðrum? „Já, ég fer reglulega í lagahöfundabúðir hérna heima og erlendis og finnst það alltaf mjög gaman. Þá er maður settur í herbergi með fólki sem maður hefur kannski aldrei hitt áður og þarf að semja lag með þeim á einum degi. Og svo næsta dag er bara nýtt herbergi og annar hópur. Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt þegar ég er að semja með ólíku fólki og það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt og fyrir vikið er ég búin að kynnast hæfileikaríku fólki alls staðar að úr heiminum.“
Hvernig verður lag til hjá þér? „Það er mjög mismunandi hvernig lögin verða til. Stundum byrja ég með einhverja hugmynd að texta eða ákveðna til-finningu sem mig langar að koma frá mér en mér finnst líka mjög gaman að búa til sögur. Lögin þurfa ekkert endi-lega að vera út frá minni reynslu, stundum er bara gaman að setja sig í spor annarra eða ímynda sér ákveðnar aðstæður og semja út frá þeim.“
Ert þú að búa til tónlist með hjálp gervigreindar – hefurðu skoðað það eitthvað? „Nei, ég er ekki að gera það og er ekki mikill aðdáandi gervi- greindar. Ég er mjög ánægð með það að Spotify ætlar að merkja gervigreindar-tónlistarmenn til að aðgreina þá frá mennsku tónlistarfólki og hætta að mæla með gervigreindartónlist fyrir hlustendur.“
Þú ert ekki bara í tónlist því þú rekur snyrtistofu á Króknum – hvernig gengur? „Ég útskrifaðist úr snyrtifræði árið 2024 og tók sveinspróf sama ár, opnaði stofuna mína í febrúar 2025 og er núna í meistaranámi. Þetta er búið að ganga ótrúlega vel, ég fékk strax mjög hlýjar móttökur og er búin að vera fullbókuð síðan ég opnaði. Það er svolítið lúxus vandamál hvað er mikið að gera hjá mér.“
Ertu ekkert að detta í að syngja fyrir kúnnana á snyrtistofunni? „Nei, ég hef nú ekki verið að gera það en kannski ert þú að koma með frábæra viðskipta-hugmynd fyrir mig!“
Nú stígurðu á svið á jólatónleikunum Jólin Heima í Miðgarði í Varmahlíð. Hvað finnst þér skemmtilegast við að koma fram á slíkum tónleikum? „Ég er mikið jólabarn þannig að mér finnst alltaf ótrúlega gaman að syngja á jólatónleikum! Það er svo skemmtilegur hópur sem kemur fram á Jólin Heima og stemningin er alltaf frábær, bæði á sviðinu og í salnum. Mér finnst líka svo gaman að fá að syngja fyrir heimafólk og taka þátt í því að koma öllum í jólaskapið.“
Ef þú mættir velja einn heimsfrægan tónlistarmann til að fara með þér í lagasmíðabúðir í viku, hver yrði fyrir valinu? „Ég held að ég myndi velja Max Martin! Hann hefur komið að svo mörgum lögum sem ég hef hlustað á í gegnum tíðina eins og t.d. Into You með Ariana Grande, I Want It That Way með Backstreet Boys og Blank Space með Taylor Swift. Mér finnst hann vera mjög hæfileikaríkur lagahöfundur og pródús-er og það væri svo gaman að fá að semja með honum og læra af honum.“
Segjum að þú fengir símtal á morg-un um að syngja á stærsta tónlistarsviði heims. Hvaða lag mynd-irðu velja til að slá í gegn og værirðu til í að stökkva út í djúpu laugina? „Ég myndi velja annað hvort nýjasta lagið mitt lose myself eða næsta lag sem ég er að fara að gefa út, you can do a lot with a broken heart. Ég myndi alltaf stökkva á þetta tækifæri en yrði örugglega að deyja úr stressi.“
Að stíga fram sem söngkona og gefa út eigin tónlist getur verið bæði spennandi og krefjandi. Hvað hefur komið þér mest á óvart á þessari vegferð hingað til og hefurðu þurft að yfirstíga einhverjar hindranir til að fylgja draumnum eftir? „Það sem hefur kannski komið mér mest á óvart er hversu mikil vinna fer í að gefa út eigin tónlist. Það er svo margt sem fylgir þessu annað en bara að semja og taka upp lögin, sérstaklega þegar kemur að því að kynna þau og koma þeim á framfæri. Ég hef þurft að stíga töluvert út fyrir þægindarammann á þessari vegferð en á sama tíma hefur það opnað fyrir svo mörg spennandi tækifæri sem ég er ótrúlega þakklát fyrir.“
Ef við kíktum á lagalistann í símanum þínum akkúrat núna, hvaða lag myndirðu helst ekki vilja að við sæjum þar og hvaða lag geturðu ekki hætt að hlusta á um þessar mundir? „Sko, ég hlusta mjög oft á Double Life úr Despicable Me eftir Pharrell Williams með litlu frændum mínum en hef líka alveg stillt á það þegar ég er ein því þetta er fáránlega gott lag. Ég elska lagið expectations með Olivia Rodrigo og hef hlustað mjög mikið á nýju plötuna hennar you seem pretty sad for a girl so in love undanfarið.
Ef við hittum þig eftir fimm ár, hvar vonastu þá til að vera stödd í tónlistinni? Er einhver sérstakur draumur, svið, samstarf eða tónlistarverkefni sem þig langar sérstaklega að láta verða að veruleika? „Draumurinn hefur alltaf verið að geta verið bara í tónlistinni og ég vona að eftir fimm ár verði ég komin á þann stað. Mig langar að ferðast um heiminn og koma fram á stærri sviðum en viðskiptavinirnir mínir segja mér reglulega að ég megi ekki verða of fræg því ég má ekki loka snyrtistofunni – þannig við sjáum hvað gerist,“ segir Valdís að lokum.
