Sterkari saman | Gestaleiðari 39. tölublaðs Feykis

Sveinbjörrg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri SSNV skrifaði gestaleiðara í 39. tölublað Feykis. MYND AF NETINU
Sveinbjörrg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri SSNV skrifaði gestaleiðara í 39. tölublað Feykis. MYND AF NETINU

Fimmtudaginn 1. október komu sveitarstjórnarfulltrúar af öllu Norðurlandi vestra saman á Hótel Laugarbakka á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samtökin eiga sér langa sögu og þingin eru orðin fastur liður í starfi sveitarfélaganna. Þar setjast sveitar-félög, ólík að stærð og aðstæðum, við sama borð og leita leiða til að gera landshlutann enn betri til búsetu og starfa.

Fjarlægðir eru miklar og byggðirnar ólíkar, en hagsmunirnir eru að lang-mestu leyti þeir sömu. Við viljum öruggar samgöngur, trausta heilbrigðisþjónustu, gott aðgengi að orku og fjöl-breytt atvinnulíf sem heldur ungu fólki heima og laðar nýja íbúa að. Mörg þessara verkefna verða best leyst í sameiningu.

Þess vegna skiptir samstarfið og samtakamátturinn máli. Við höfum ekki alltaf upplifað að á okkur sé hlustað, en við ætlum að breyta því. Það gerum við best með því að tala einni röddu. Það á t.d. við þegar umsagnir eru sendar Alþingi og ráðuneytum, þegar fjárveitingar til samgöngubóta eru ræddar og þegar stjórnvöld móta stefnu sem hefur bein áhrif á líf fólks í dreifðum byggðum. Samstarfið er þó ekki bara hagsmunagæsla.

Í gegnum sóknaráætlun landshlutans og Uppbyggingar-sjóð hafa orðið til fjölmörg verkefni sem styrkt hafa samfélögin: ný fyrirtæki, menningarviðburðir, vöruþróun og nýsköpun sem sprettur upp úr grasrótinni. Atvinnuráðgjöfin sem SSNV býður m.a. upp á styður við frumkvöðla og fyrirtæki sem vilja vaxa, og starfsfólk samtakanna er með starfsstöðvar víðs vegar um landshlutann, nærri fólkinu sem það þjónar.

Verkefnin framundan eru ærin, en tækifærin eru það líka. Norðurland vestra býr yfir öflugu atvinnulífi, sterkum samfélögum, fallegu ósnortnu landslagi og fólki sem kann að bretta upp ermar.

Í heimi þar sem sífellt fleiri geta valið sér búsetu óháð vinnustað höfum við margt fram að færa: öryggi, nálægð, rými og lífsgæði sem ekki verða mæld í fermetraverði. Til að nýta þessi tækifæri þurfum við að halda áfram að vinna saman, af metnaði og með opnum huga. Samstarfið byggir á trausti og sameiginlegri sýn og það hefur sýnt sig að það skilar árangri.

Viljinn er til staðar. Nú er það okkar allra að fylgja honum eftir. Því þegar Norðurland vestra stendur saman, stendur landshlutinn sterkari, og það kemur öllum íbúum hans til góða.

Sveinbjörg Rut Pétursdóttir

framkvæmdastjóri SSNV

- - - - - -

Gestaleiðari er nýlunda hjá okkur á Feyki og er hugmyndin að fá kannski einn gest í mánuði til að skrifa leiðara. Það er Sveinbjörg Rut hjá SSNV sem ríður fyrst á vaðið og þökkum við henni fyrir góðar undirtektir við þessu brölti.

Fleiri fréttir