100 ára afmælisfagnaður Kvennaskólans í dag

Í tilefni 100 ára afmælis Kvennaskólans á Blönduósi verður efnt til afmælishófs í dag, mánudaginn 12. nóvember kl. 13:30. Gestum verður boðið að skoða Kvennaskólann og þiggja léttar veitingar að dagskrá lokinni. Um leið verður Þekkingarsetrið á Blönduósi formlega opnað í Kvennaskólanum. Allir eru velkomnir.

Dagskrá:

  • Ávarp mennta-og menningarmálaráðherra
  • Guðrún Jónsdóttir, arkitekt
  • Iðunn Vignisdóttir, sagnfræðingur
  • Aðalbjörg Ingvarsdóttir, Vinir Kvennaskólans
  • Katharina Schneider, framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins
  • Undirritun samstarfssamnings milli mennta-og menningarmálaráðuneytisins við Þekkingarsetrið á Blönduósi
  • Þekkingarsetrið á Blönduósi formlega opnað

 

Fleiri fréttir