112 dagurinn í A-Hún

112 dagurinn er haldinn um allt land í dag en markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og þá margvíslegu aðstoð sem almenningur hefur aðgang að í gegnum það. Í tilefni dagsins hefur verið sett saman dagskrá á Blönduósi og Skagaströnd.

Á Blönduósi verður dagskrá sem hefst klukkan 16:30 á því að björgunar- og hjálparlið ekur hring um bæinn. Að því loknu verður sýning á tækjum og tólum á plani slökkvistöðvarinnar á Blönduósi og m. a. verða þar vígðar nýjar klippur slökkviliðsins. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Þeir sem standa að deginum eru Björgunarfélagið Blanda, Brunavarnir A-Hún., Heilbrigðisstofnunin Blönduósi, Rauðakrossdeildin og Lögreglan.

Á Skagaströnd verður opið hús að Vallarbraut 4 (hús RKÍ og slökkviliðsins) frá kl. 16:00 – 18:00 og þar býðst gestum og gangandi að skoða bíl og tækjabúnað slökkviliðsins , sjúkrabílinn og hans búnað og bíla og tæki björgunarsveitarinnar. Þar verður heitt á könnunni og allir hvattir til að líta við.

 

Fleiri fréttir