17. júní á Blönduósi

Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn hátíðlegur á Blönduósi 17. júní. Að venju verður boðið upp á ýmislegt til skemmtunar og afþreyingar. Hefðbundin skrúðganga verður farin frá Sölufélagi Austur-Húnvetninga að Félagsheimilinu og hefst hún klukkan 14:45.

Síðan verður hátíðardagskrá á Bæjartorgi með hugvekju, fjallkonu, tónlist og hátíðarræðu svo eitthvað sé nefnt. Að venju verða einnig leikir fyrir börn og unglinga í íþróttahúsinu og rennibrautakeppni í sundlauginni. Kynning verður á golfíþróttinni á golfvellinum í boði Golfklúbbsins Óss, auk sýnikennslu.

Sýning verður í reiðhöllinni en sýnt verður frá vetrarstarfi Hestamannafélagsins Neista og er frítt inn. Börnum verður boðið á hestbak í lok sýningar. Kaffisalan sívinsæla í Félagsheimilinu er á sínum stað og ætti enginn að þurfa að vera svangur.

Boðið verður upp á útsýnisflug frá Blönduósflugvelli frá klukkan 17 þann 16. júní og eftir þörfum þann 17. júní. Verð fyrir stutt flug er 2.000 krónur pr. sæti. Fyrir heldur lengra flug 3.000 krónur pr. sæti. Æskilegt er að þrír bóki sig saman en ekki skylda. Pantanir í síma 664 6028.

Dagskrá hátíðarhalda á  Blönduósi þann 17. júní

Kl. 8:00 Fánar dregnir að hún

Kl.10:00 -11:00 Rennibrautakeppni í sundlauginni – tímataka.

Kl.10:30 -11:30 Kynning á golfíþróttinni á golfvellinum í boði Golfklúbbsins Ós, auk sýnikennslu

Kl. 12:00 Sýning í reiðhöllinni, sýnt verður frá vetrarstarfi Hestamannafélagsins Neista (frítt inn) Börnum boðið á hestbak í lok sýningar og þeir sem vilja geta spreytt sig á þrautabraut.

Kl.13:45 Andlitsmálun fyrir utan SAH, helíum blöðrur og sælgæti verður til sölu.

Kl.14:45 Skrúðganga frá SAH að félagsheimilinu Hátíðardagskrá; Hugvekja Fjallkonan Hátíðarræða Tónlistaratriði

Kl.15:00 -15:40 Skipulagðir leikir í íþróttahúsinu

Kl.16:00 Kaffisala í félagsheimilinu. Aðgangseyrir 1000 kr. frítt fyrir 16 ára og yngri

Frítt verður í sund af tilefni 5 ára afmælis sundlaugarinnar.

Umsjón með hátíðarhöldunum hefur Hestamannafélagið Neisti.

Fleiri fréttir