17. júní hátíðarhöld á Blönduósi
Á Blönduósi hefjast 17. júní hátíðarhöld kl. 8:00 þegar fánar verða dregnir að hún en kl. 10:00 -11:00 hefjast þeir leikir sem börnin bíða hvað spenntust eftir en þá verður þeim boðið á hestbak í Reiðhöllinni Arnargerði og dorgveiðikeppni á bryggjunni stendur svo yfir frá kl. 10:30 -11:30 (þátttakendur eru á eigin ábyrgð og eiga að vera í björgunarvestum).
Annars lítur dagskráin út svona:
- Kl. 11:00 Guðsþjónusta í Blönduósskirkju
- Kl. 11:30 -12:30 Hjólaferð (mæting við Grunnskólann,)
- Kl. 12:30 -13:30 Andlitsmálun fyrir utan SAH afurðir helíumblöðrur og annað sem tilheyrir
- verður til sölu (ekki tekið við greiðslukortum)
- Kl. 13:30 Skrúðganga frá SAH afurðum á Bæjartorg
- Á Bæjartorgi verður hátíðardagskrá;
- Hugvekja
- Fjallkonan
- Hátíðarræða
- Tónlist
- Leikir fyrir börn á Þríhyrnutúni
- Kl. 14:30 -16:30 Kaffisala í Félagsheimilinu, vöfflukaffi (ekki tekið við greiðslukortum)
- Kl. 17:00 Kvikmyndasýning fyrir börn, „Hop“ (ekki tekið við greiðslukortum)
- Frá kl. 15:00 Útsýnisflug frá Blönduósflugvelli að hætti Magnúsar Ólafssonar. Ferðin kostar
- 1.000-1.500 kr. eftir lengd ferðar (ekki tekið við greiðslukortum)
- Sundlaugin verður opin frá 16:00 – 20:00.
- Umsjón með hátíðarhöldunum hefur Hestamannafélagið Neisti