25 laxar fyrstu vikuna í Blöndu
Á miðvikudaginn í síðustu viku voru 25 laxar komnir að landi í Blöndu, þegar vika var liðin síðan hún opnaði. Það er fimm löxum meira en veiddist í opnunarhollinu einu sér í fyrrasumar. Um er að ræða ágætis laxa og eru menn bjartsýnir á framhaldið þar sem áin er óðum að taka þann græna lit sem einkennir hana og brúni liturinn því á undanhaldi. Áin er þó ennþá vatnsmikil. Fram kemur á vefnum Lax-á að nú fari hver að verða síðastur að tryggja sér veiðileyfi í Blöndu í júní.