30 tinda göngu lokið á Bolafjalli

Þorgrímur Daníelsson, sóknarprestur á Grenjaðarstað, sem gengið hefur á fjöll og/eða tinda víðs vegar um land í ágúst, lauk göngu á þrítugasta tind á Bolafjalli við Bolungarvík að kvöldi 27 ágúst.

Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á Landspítalasöfnun Þjóðkirkjunnar. “Þetta hefur bæði verið skemmtilegt og gefandi” segir Þorgrímur “ – og hefur vonandi vakið athygli á góðu málefni.” Þorgrímur vill þakka þeim fjölmörgu sem hafa stutt hann, bæði með hvatningu og eins því að slást í för með honum á tindana. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á facebook síðunni “30 tindar í ágúst

Söfnunarreikningur Landspítalasöfnuninnar er 0301-26-050082, kt. 460169-6909.

Fleiri fréttir