32,3 milljónir á ári
Menningarsamningar, samningar um menningarmál og menningartengda ferðaþjónstu, til þriggja ára á milli ríkisins og sambanda sveitarfélaga um allt land voru undirritaðir í síðustu viku. Samningarnir fela í sér að árlega verður 250,7 m.kr. varið til menningarmála og menningartengdrar ferðaþjónustu um allt land. Þar með er stuðningi ríkisins beint í einn farveg í því skyni að efla slíkt starf um landið allt og gera það sýnilegt.
Mennta- og menningarmálaráðherra og iðnaðarráðherra undirrituðu samningana fyrir hönd ríkisins. Samningarnir, sem eru sjö talsins, eru gerðir við Samband sveitafélaga á Norðurlandi Eystra, Austurlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
Heildarframlag til Norðurlands vestra nemur árlega 32,3 m.kr.
Fulltrúar í menningarráði 2010-2012;
Björg Baldursdóttir, sveitarfélaginu Skagafirði, formaður
Guðný Kjartansdóttir, Sveitarfélaginu Skagafirði
Ragnar Smári Helgason,Húnaþingi vestra
Þóra Sverrisdóttir, Húnavatnshreppi, A-Hún.
Bjarni Jónsson, fulltrúi SSNV