3,3 milljónir í styrki til að bæta þjónustu við börn
Veittar verða 3,3 milljónir króna í styrki á þessi ári til verkefna í Húnaþingi sem hafa það að markmiði að efla og bæta nærþjónustu við langveik börn og börn með ofvirkni og athyglisbrest. Alls verða veittar 80 milljónir króna til verkefna á þessu svið til sveitarfélaga, samtaka sveitarfélaga og skólaskrifstofa um land allt og er það sama fjárhæð og í fyrra.
Þetta kemur fram á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Húni.is hefur tekið saman.
Styrkirnir eru veittir á grundvelli samstarfssamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, og Sambands íslenskra sveitarfélaga um tilraunaverkefni til styrktar langveikum börnum og börnum með ofvirkni og athyglisbrest sem undirritaður var 4. desember 2009. Í samningnum er gert ráð fyrir að veita styrki til verkefna af þessum toga árlega í þrjú ár og hefur nú verið úthlutað í tvö skipti.
Alls bárust umsóknir um styrki til 125 verkefna frá 36 aðilum, þ.e. sveitarfélögum, samtökum sveitarfélaga og skólaskrifstofum, fyrir rúmar 319 milljónir króna en sem fyrr segir voru 80 milljónir króna til ráðstöfunar.
Verkefnisstjórn fór yfir styrkumsóknirnar og byggði við mat á þeim á skýrslum tveggja starfshópa frá árinu 2008 um þjónustuúrræði fyrir langveik börn og bætta þjónustu við börn með ofvirkni og athyglisbrest. Einnig byggði verkefnisstjórnin á áliti foreldra um forgangsröðun þjónustu samkvæmt rýnihóparannsókn sem velferðarráðuneytið stóð fyrir um svipað leyti.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, hafa staðfest tillögu verkefnisstjórnar um úthlutun styrkjanna.
Í lista yfir úthlutun ársins kemur eftirfarandi fram varðandi Húnavatnssýslur:
Blönduós: 1.000.000 kr.
Húnavatnssýslur: 1.300.000 kr.
Sveitarfélagið Skagaströnd: 1.000.000 kr
/Húni.is