37. tölublað Feykis komið út
37. tölublað Feykis kom út í dag. Í blaðinu er m.a. fjallað um Laufskálarétt og Árhólarétt í Unadal í Skagafirði í máli og myndum. Í opnuviðtali er rætt við Rósalind og Einar Vigfússon frá Nýja Íslandi. Einnig er rætt við Jóndísi Ingu Hinriksdóttur, sextán ára stúlku í Skagafirði sem glímir við þrjá gigtarsjúkdóma.
Helgi Hrannar Traustason á Hofsósi heldur um áskorendapennann og Þóra Björk Jónsdóttir fjallar um matreiðslu á villtum sveppum og gæsapaté. Bryndís Rut Haraldsdóttir er íþróttagarpur vikunnar og rætt er við Siggu Beinteins um tónleikana „Lögin sem allir elska“ í Sauðárkrókskirkju í kvöld.Vísnaþáttur Guðmundar Valtýssonar er á sínum stað og sömuleiðis aflahornið, Spurning vikunnar, Krossgátan og annað afþreyingarefni.
Í fréttum í blaðinu er einnig fjallað um skýrslu hagfræðistofnunar um þróun byggðar á Norðurlandi vestra, lækkað framlag til Hólaskóla, 22 tonna gröfu sem sökk á bólakaf, æfingar fíkniefnahunda á Sauðárkrókiuppsagnir hjá Háholti, bleikan mánuð, zumba á Skagaströnd, endurbætur gagnakofa á Arnarvatnsheiði og golfmót FNV.