38. tölublað Feykis er komið út
38. tölublað Feykis kom út í dag. Í blaðinu er m.a. fjallað um stóðrétt í Víðidalstungurétt og góðan vinnuanda í sláturhúsi SAH Afurða. Í opnuviðtali er rætt við Bjarna Stefánsson sýslumann. Einnig fjallað um umhverfisviðurkenningar í Skagafirði og tvær Hrútasýningar.
Stefanía Fanney Björgvinsdóttir, brottfluttur Skagfirðingur, heldur um áskorendapennann og Ellý Rut Halldórsdóttir og Þorbergur Guðmundsson á Hvammstanga eru matgæðingar vikunnar. Hallfríður Ósk Ólafsdóttir ríður á vaðið í prjónaþættinum eftir langt sumarfrí.
Hanna Dóra Björnsdóttir segir frá starfsemi Virk á Norðurlandi vestra og sagt er frá óvæntum fundi kirkjugarðs í Hegranesi.Íþróttafréttir eru á sínum stað og sömuleiðis aflahornið, Spurning vikunnar, Krossgátan og annað afþreyingarefni.
Í fréttum í blaðinu er einnig fjallað um viðbrögð Gunnars Braga Sveinssonar þingmanns og Erlu Bjarkar Örnólfsdóttur Hólarektors við fjárlagafrumvarpinu,úthlutun Menningarráðs Norðurlands vestra, ráðstefnu um líknarmeðferð, framkvæmdir á skólalóð á Blönduósi og margt fleira.