Fer mjúkur inn í daginn með Karen í Carpenters í eyrunum / EYSTEINN ÍVAR
Þó Eysteinn Ívar Guðbrandsson sé nú bara á 25. ári þá er eiginlega mesta furða að Feykir sé ekki löngu búinn að plata hann í að svara Tón-lystinni, enda kappinn búinn að vera viðriðinn leik og söng frá unga aldri. Hans hljóðfæri er píanó en hann segir þó sjálfur að aðalhljóðfærið hans sé röddin. Eysteinn, sem er fæddur árið 2001, er Króksari og hefur búið þar alla tíð. „Ég er sonur þeirra Guðbrands Jóns Guðbrandssonar og Sigurlaugar Vordísar Eysteinsdóttur.
„Já, það er nú það, uhmm,“ segir Eysteinn hikandi þegar hann er spurður út í helstu afrek sín á tónlistarsviðinu. „Þau eru nú nokkur, svona fyrsta sem mér dettur í hug er að koma jólatónleikunum Jólin Heima á laggirnar ásamt góðum vini mínum, Jóhanni Daða, árið 2020 og er það verkefni enn í fullum gangi og má segja að það sé orðið hluti af okkar jólamenningu hér í firðinum. Verð svo að minnast á það þegar við í Danssveitinni [Dósa] fengum að spila og syngja með átrúnaðargoðinu Röggu Gísla. Veistu, það er eiginlega bara erfitt að setja í orð hvernig sú tilfinning var, en við getum orðað það þannig að mér leið eins og ég væri Jakob Frímann í Stuðmönnum á sviðinu með henni. En annars er ég bara búinn að vera ofboðslega heppinn með fólkið sem ég hef fengið að spila og syngja með og hlakka til að spila oftar með og einnig að bæta við þann góða lista sem er nú þegar kominn.“
Hvað er á döfinni? „Ég er einmitt að fara að leikstýra hjá Leikfélagi Fjallabyggðar og stefnum við á að frumsýna um miðjan/lok mars virkilega spennandi verkefni og svo eru þónokkur þorrablót framundan sem ég er að spila á þannig það er nóg framundan.“
Hvaða lag varstu að hlusta á? „Ég var rétt í þessu að hlusta á lagið Open Arms með Journey ofboðslega fallegt lag.“
Uppáhalds tónlistartímabil? „Ég á svolítið erfitt með að gera upp á milli því þetta er svo mikið bland í poka hjá mér. En ætli 80's taki þetta ekki með naumindum.“
Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? „Þegar hljómsveitir fá sinfóníu til liðs við sig, það er algjört konfekt.“
Hvaða lag er í uppáhaldi akkúrat núna? „Lagið Elska þig með Mannakorn er í miklu uppáhaldi þessa stundina.“
Ef þú gætir valið þér söngvara til að syngja með dúett, hvaða söngvara vildirðu syngja með og hvað lag tækjuð þið? „Það væri Pálmi Gunn og hann mætti velja lagið sem við myndum syngja saman.“
Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? „Það var alveg bland í poka mikið íslenskt en svo líka erlend tónlist og yfirleitt lög í eldri kantinum sem maður kannski fýlaði ekki alveg alltaf við fyrstu hlustun en varð síðan alltaf betra og betra með hverri hlustun.“
Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? „Það var diskur, man ég, og í minningunni var það annað hvort Mannakornsplata eða Svona var diskarnir sem voru með vinsælustu lögunum frá því ári, man að við vorum duglegir að kaupa þá diska við feðgar.“
Hvaða græjur varstu þá með? „Það voru græjurnar í bílnum.“
Hvað var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? „Lagið Reyndu aftur með Mannakorn. Man eftir að við feðgar vorum að versla geisladiska fyrir útvarpið í bílnum og það var hljómsveitin Mannakorn sem varð fyrir valinu og þetta lag ómaði ansi oft í græjunum í bílnum, enda frábært lag.“
Hvaða lag fær þig til að skipta um stöð eða slökkva á útvarpinu? „Heyrðu, ekkert sem mér dettur í hug. Ég verð að viðurkenna að ég hlusta lítið á útvarp og ef það gerist þá er það Rás 1 og þá viðtöl við fólk.“
Þú heldur dúndurpartý í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? „Það er allan tímann Stjórnin ekki spurning.“
Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? „Það væri heill playlisti með Carpenters því að hlusta á hana Karen í Carpenters syngja er svo róandi og þægilegt og maður fer bara mjúkur inn í daginn.“
Hvaða Bítlalag hefðir þú viljað hafa samið eða er eitthvað annað lag sem þú hefðir viljað hafa samið? „Það eru lögin Michelle og Something ég er ofboðslega hrifinn af þeim lögum. Ef ég fengi að velja eitt íslenskt sem er voða erfitt þar sem við eigum svo ofboðslega mörg falleg lög að þá væri það Skýið eftir Björgvin Halldórsson, ofboðslega fallegt í alla staði.“
Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? „Ég ætla að veita mér allt frelsi í þessari spurningu. Ég myndi fara á tónleikana Í uppáhaldi hjá mér sem eru tónleikar með mínum uppáhaldslögum. Við erum að tala um úrvalslið af tónlistarmönnum, bæði innlendum og erlendum, og svo verð ég að hafa Sinfó með, þá verður þetta geðveikt. Tónleikarnir verða í nýja Menningarhúsinu á Sauðárkróki og mér skilst á þeim að stefnan sé að hafa þetta sem svona opnunartónleika hússins, sem mér náttúrulega líst mjög vel á. Ég myndi að sjálfsögðu bjóða öllum á þessa tónleika því það má enginn láta þessa tónleika framhjá sér fara – allavega að mínu mati.“
Hvaða músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? „Það voru Bee Gees og Stuðmenn sem fengu að hljóma til skiptis hjá mér.“
Er eitthvað lag sem fær þig til að tárast eða snertir streng í hjartanu? „Þau eru alveg þónokkur lögin sem hafa snert mann í gegnum tíðina og það er æðislegt þegar lagið sem þú ert að hlusta á getur haft þau áhrif á þig að það fara alls konar tilfinningar í gang sem jafnvel fá þig til að fella nokkur tár – þá er lagið virkilega gott. Ég ætla að fá að nefna nokkur ofboðslega falleg lög sem hafa snert við mér í gegnum tíðina og ég ætla að byrja á laginu sem er svona það nýjasta á þessum lista. Það er lagið Jesús kristur og ég með Mannakorn, ótrúlega fallegt lag eftir Magga okkar Eiríks. Næsta lag er lag sem hefur mikla þýðingu fyrir mig og það er lagið Íslenska konan sem ég hef fengið að syngja nokkrum sinnum í útförum og í hvert skipti sem ég syng þetta fallega lag fæ ég mikla hlýju í hjartað því þetta lag söng ég í fyrsta skipti í útför ömmu minnar. Hún var fyrir mér Íslenska konan. Að lokum verð ég að nefna lagið Lítill drengur með Villa Vill, ofboðslega fallegt lag í alla staði og mér þykir ofboðslega vænt um það. Ég gæti talið upp töluvert fleiri lög en læt þetta nægja núna.“
Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? „Það eru svo margir tónlistarmenn sem mig hefur dreymt um að vera en á endanum dreymir mann um að gera eitthvað úr sjálfum sér og ég ætla að halda þeim draum gangandi og vonandi rætist hann einn daginn.“
Hvaða plata hefur skipt mestu máli í þínu lífi og hvers vegna? „Það er held ég ekki nein ein plata sem skiptir mig alveg mestu máli. Það er meira lögin sem eru hingað og þangað hjá mér sem skipta mig meira máli heldur en ein sérstök plata.“
