40% lækkun húshitunarkostnaðar

Gera má ráð fyrir að húshitunarkostnaður á Skagaströnd lækki um allt að fjörtíu prósent að meðaltali þegar hitaveita verður tekin í notkun þar í haust. Framkvæmdir standa nú sem hæst á Skagaströnd og jafnhliða er lagður ljósleiðari í öll hús á staðnum. RÚV greindi frá þessu í kvöldfréttum í gær.

Í samtali við RÚV segist Adolf Berndsen oddviti Skagastrandar, reikna með því að á einu til tveimur árum verði 99% húsa á Skagaströnd komin með hitaveitu. Talsverður kostnaður fylgir því að taka hana inn, einkum í þeim húsum þar sem rafmagnsofnar eru fyrir, en á móti koma niðurgreiðslur frá ríki og sveitarfélögum. Þá má reikna með að stofnkostnaður skili sér tiltölulega fljótt þar sem húshitunarkostnaður lækkar umtalsvert.

Eins og greint hefur verið frá á vef Feykis hófust framkvæmdir á síðasta ári, þegar stofnæð Hitaveitu Blönduóss frá Reykjum var endurnýjuð. Í framhaldi af því er nú hafin lagning nýrrar stofnæðar frá Blönduósi, sem endar í dreifikerfi innanbæjar á Skagaströnd. Áætlað er að allar þessar framkvæmdir kosti 1,2 milljarða króna. Á Skagaströnd eru hús kynt með rafmagni og horfa menn því bjartsýnir til hituveitunnar.

Fleiri fréttir