5 milljónir í hlutafélag um hótelbyggingu
Starfshópur um eflingu ferðaþjónustu á Skagaströnd leggur til að stofnað verði hlutafélag um byggingu hótels á Skagaströnd. Lagt er til að samið verði við arkitektastofu um gerð grófrar hugmyndar af 15-20 herbergja hóteli.
Sérstaklega á að skoða hvort rétt sé eða skynsamlegt að breyta eldri húsum á staðnum í hótel. Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samþykkt að leggja 5 milljónir króna í hlutafé um hótelbygginguna.
Í júní á síðasta ári skipaði sveitarstjórn Skagastrandar starfshóp vegna eflingar ferðaþjónustu á Skagaströnd. Starfshópinn skipuðu þeir Adolf H.Berndsen, Halldór G.Ólafsson og Jón Ólafur Sigurjónsson. Hlutverk hópsins var að skoða hvernig megi gera ferðaþjónustu enn öflugri og mikilvægari atvinnugrein og að skoða möguleika á byggingu hótels á Skagaströnd.
Á sveitarstjórnarfundi Skagastrandar í gær var lögð fram greinargerð hópsins en hún var unnin í samstarfi við atvinnuráðgjafa Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Í niðurstöðum starfshópsins er lagt til að samið verði við Zeppelin arkitektastofu/Orra Árnason um gerð grófrar hugmyndar af 15-20 herbergja hóteli. Sérstaklega verði skoðað hvort rétt sé eða skynsamlegt að breyta eldri húsum á staðnum svo sem Hafnarhúsinu eða frystihúsunum á Hólanesi í hótel.
Í greinargerðinni kemur einnig fram að samhliða þessari vinnu verði óskað eftir áframhaldandi samstarfi við SSNV atvinnuþróun um frekari greiningu á tækifærum við markaðssetningu hótels og gerð viðskiptaáætlunar.
Starfshópurinn leggur til að stofnað verði hlutafélag um byggingu hótelsins. Hlutafé verði 5 milljónir króna sem sveitarfélagið leggur til. Í samþykktum félagsins verði gert ráð fyrir mögulegri hlutafjáraukningu. Hlutverk stjórnar verði í fyrstu að leita nýrra hluthafa og vinna að fjármögnun á byggingu og rekstri hótels á Skagaströnd.
Sveitarstjórn Skagastrandar ræddi greinargerðina á fundi sínum í gær og þær tillögur sem lagðar voru fram og samþykkti að leggja 5 milljónir króna í hlutafé í hótelbyggingu. Þá var samþykkt að Adolf H. Berndsen, Halldór G. Ólafsson og Jón Ólafur Sigurjónsson skipi undirbúningsstjórn fram að stofnfundi félagsins um verkefnið.