5,8 milljónir neikvæðar
Rekstrarniðurstaða A hluta sveitasjóðs Húnavatnshrepps fyrir árið 2010 var neikvæð um 5,8 milljónir. Þetta kom fram á hreppsnefndafundi í liðinni viku.
Á fundinum kom fram að rekstrartekjur á árinu í A- hluta sveitarsjóðs voru alls 312,0 millj kr. Rekstrargjöld voru alls 315,6 millj. kr. Fjármagnstekjur og fjármagnsgjöld voru neikvæð um 2,2 millj. kr. Rekstarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs var neikvæð um 5,8 millj. kr.
