636 þorskígildistonn á Norðurland vestra
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, hefur úthlutað 6.707 þorskígildistonna byggðakvóta fiskveiðiársins 2012/2013. Alls er byggðakvóta úthlutað til 32 sveitarfélaga og í þeim fengu 49 byggðarlög úthlutun, þar af fengu sveitarfélög á Norðurlandi vestra 636 þorskígildistonn.
Samkvæmt heimasíðu ráðuneytisins byggir úthlutun byggðakvótans á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2002/2003 til fiskveiðiársins 2011/2012.
Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark, þar á meðal Svf. Skagaströnd. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar og fá fjögur byggðarlög þá úthlutun.
Húnaþing vestra fékk úthlutuð 70 þorskígildistonn í gær, Blönduósbær fékk 140, Svf. Skagaströnd 300 og Svf. Skagafjörður 126, þar af Sauðárkrókur 70 og Hofsós 56.