81,3% landsmanna vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri

Samkvæmt könnun MMR fyrir Hjartað í Vatnsmýri eru 81,3% landsmanna fylgjandi því að Reykjavíkurflugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri. Stuðningur við flugvöll í Vatnsmýri mælist mikill á öllum svæðum landsins en 80,6% íbúa höfuðborgarsvæðisins, utan Reykjavíkur, 71,8% íbúa Reykjavíkur og 90,2% íbúa landsbyggðarinnar vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri

Hjartað í Vatnsmýrinni vilja vekja athygli á því að 90,2% íbúa utan Höfuðborgarsvæðisins vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri og segja leitun að jafn miklum stuðningi við tiltekið málefni á landsvísu.

Könnunin fór fram dagana 9. til 11. september sl. og voru þátttakendur alls 942 og af þeim tóku 89,1% aðspurðra afstöðu. Spurt var: "Vilt þú að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík?".

Í dag kl. 12:00 mun Hjartað í Vatnsmýri afhenda Jóni Gnarr borgarstjóra fjölmennustu áskorun til stjórnvalda frá upphafi sem rúmlega 69.000 manns hafa skrifað undir á vefnum lending.is og á undirskriftalistum um land allt. Afhendingin fer fram í anddyri Ráðhúss Reykjavíkur og hljóðar hún svo:

„Við leggjumst gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni og skorum á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar.“

Fleiri fréttir