Á faraldsfæti
Segja má að fyrsta ferðahelgi ársins sé að ganga í garð nú um páskana þegar fjölmargir landsmenn verða á faraldsfæti. Veðurspá er nokkuð góð fyrir landið, búist við hæglætisveðri en frekar köldu. Því má ætla að aðstæður til aksturs verði góðar en reynslan sýnir að þá hneigjast ökumenn gjarnan til að aka greiðar en ella og árvekni þeirra virðist minnka.
Ferðalangar þurfa að undirbúa ferð sína vel, líka þótt aðeins eigi að fara um þjóðvegi landsins en ekki upp á hálendið. Ávallt þarf að láta vita af ferðum sínum og kynna sér veðurspá og færð. Á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma þeirra 1777 er slíkar upplýsingar til dæmis að fá.
Ökutæki þarf að vera í góðu ásigkomulagi, dekk óslitin og tjöruhreinsuð og nægt eldsneyti. Farangur og annar búnaður í samræmi við fyrirhugað ferðalag og hann festur niður eða skorðaður með fullnægjandi hætti.
Teppi, auka nesti, hlýr fatnaður og góður skóbúnaður er algjör nauðsyn í hverri ferð því aldrei er að vita hvort eða hvenær eitthvað kemur uppá. Viðeigandi fjarskiptatæki þarf að hafa með og muna að rafmagnslaus koma þau ekki að gagni.
Að mörgu er að hyggja til að tryggja öryggi sitt og sinna sem best.
· Bílbelti eiga allir að nota og börn að vera í viðeigandi öryggisbúnaði miðað við hæð og þyngd.
· Á skíðum nota allir hjálm og utan hefðbundinna skíðasvæða skal vera með snjóflóðaýli og snjóflóðastöng.
· Á hálendið skal ekki fara nema í samfloti við aðra og kynna sér sprungukort jökla áður en farið er upp á þá.
· Í sundlaugum noti ósynd börnin armkúta og séu undir stöðugu eftirliti forráðamanns.
/vis.is