Á skíðum skemmta þau sér
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
26.03.2015
kl. 13.15
Það er fastur liður í starfi margra grunnskóla á Norðurlandi vestra að skella sér í skíðaferð í Tindastól og skemmta sér þar einn dag. Einn þessara skóla er Blönduskóli.
Á dögunum fóru 26 nemendur í unglingadeild á skíði í blíðuveðri, ásamt fararstjórunum Berglindi og Óla. Fjöldi mynda úr ferðinni er á myndasíðu skólans.